Bjórhátíð á Hólum 2026 2026 Beint að efninu
2026

Bjórhátíð á Hólum 2026

Laugardaginn 6. júní

Í leikfimisal Hólaskóla

  • 15:00 Húsið opnar, brugghús kynna vörur sínar og mathús bjóða gómsætan mat til sölu.
  • 16:00 Kútarall hefst í biskupagarðinum
  • 17:00 Happdrætti, meðal vinninga er bruggdagur á bjórsetrinu ofl. Allt glæsilegir vinningar
  • 18:30 Niðurstöður kosninga kynntar, besti básinn og besti bjórinn
  • 19:00 Dagskrárlok

Hátíð

Einn eftirmiðdag í júní raða bruggmeistarar sér upp í gamla leikfimisal hólaskóla og bjóða gestum að bragða afurðir sínar. Fyrir utan hafa heimamenn reist sölubása og selja mat sem enginn verður svikinn af. Búið er að tjalda yfir borð og bekki þar sem gestir njóta matar síns. Í biskupsgarðinum fer Kútarallið fram.

Listi yfir brugghús sem taka þátt verður birtur hér á síðunni þegar nær dregur ásamt matseðlum sölubásanna sem verða á staðnum. Fylgist með!

Hér eru nokkrar minningar frá fyrri hátíðum: